Skóladagatal 2011-2012
Skólareglur
Skólaakstur
Kynningarbæklingur GBF
Tilkynna veikindi
Bekkjanámskrár
Heilsugæsla
Eyðublöð
Samstarfssamningar
Borgarfjarðarbrúin
Útgefið efni
Krækjur
Í útitíma í gær fóru nemendur skólans um Hvanneyrarstað og tíndu rusl sem varð á vegi þeirra. Að lokinni ruslatínslu var sorpið flokkað. Þessi liður í takt við Grænfánann um að ganga vel um sitt nærumhverfi.
Sleðaferð var farin í brekkurnar í Efri-Hrepp fimmtudaginn 26.janúar sl. með aðstoð nokkra foreldrar sem sáu um að keyra börnum og sleðum fram og til baka og þökkum við þeim kærlega fyrir þessa aðstoð. Þessi dagur tókst mjög vel og skemmtu allir sér vel.
Haldið var upp á skákdag Íslands með því að nemendur í 3.-4. bekk hjálpuðu og kenndu nemendum í 1.-2. bekk mannganginn og aðstoðuðu þau við að tefla. Daginn eftir var síðan hraðskákamót hjá 3.-4.bekk.
Þær voru heldur betur þjóðlegar stelpurnar í íþróttatíma á Varmalandi og sungu þjóðsönginn hátt og snjallt :)
Skákdagur Íslands var haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn í gær og af því tilefni var teflt víða um skólann og nemendur sýndu alveg snilldar takta í taflinu. Töflin eru búin að vera uppivið hjá okkur á Kleppjárnsreykjum alla vikuna og hafa nemendur nýtt þau vægast sagt vel.
Á miðvikudag hélt nemendafélagið á Kleppjárnsreykjum diskótek fyrir nemendur í 4. - 7. bekk á Kleppjárnsreykjum og 4. bekk á Hvanneyri. Það var svaka stuð og allir skemmtu sér konunglega.
Vegna slæms veðurútlits og hálku verður heimferð á Kleppjárnsreykjum kl 12:00 og á Varmalandi kl 13:00