Nemendur Hvanneyrardeildar fögnuðu glæsilegum árangri lestrarátaks sem þau luku nú í febrúar. Keppt var á milli bekkja deildarinnar um fjölda lesinna mínútna og þar fór 4. bekkur með sigur úr bítum. Sigurvegararnir fengu að velja verðlaun sem allir bekkir fengu að njóta og völdu þau að halda náttfatapartý eins og meðfylgjandi myndir sýna. Partýið heppnaðist eins og best var á kosið. Flestir nemendur sýndu mikinn áhuga og metnað og margir uppskáru gríðarlegar framfarir í lestri í átakinu.
Einnig var keppt innbyrðis í hverjum bekk um fjölda mínútna þar sem þessir nemendur skoruðu hæst:
1. bekkur: Unnur Björg Ómarsdóttir
2. bekkur: Þorvaldur Örn Þorvaldsson
3. bekkur: Óskar Óðinn Sigtryggsson
4. bekkur: Ásdís Lilja Arnarsdóttir.
Ásdís Lilja las mest allra nemenda, samtals 24 klst á aðeins 3 vikum, geri aðrir betur J