Skólasafnið
Meginmarkmið skólasafnsins er að styðja sem best hvert það starf, sem fram fer í skólanum
Það stefnir að því að gegna lykilhlutverki í allri upplýsingaleit nemenda og starfsmanna. Það verði einnig kjörinn staður til að vinna úr fundnum upplýsingum og veiti aðstöðu til að fólk geti sett fram eigið efni á skapandi og frumlegan hátt. Safnið leggur mikla áherslu á að verða ein af meginstoðum þjálfunar nemenda í lestri, bæði á bókmenntatexta og fræðilegum.
Þessi markmið sín nálgast safnið með því að:
í safninu sé sem fjölbreytilegast efni, sem tengist námi og áhugamálum nemenda og starfi kennara það hafi aðgang að upplýsingaveitum á Netinu og geti leitað til annarra safna um millisafnalán á hverju því efni, sem ekki er tiltækt í safninu Safnið sé sem aðgengilegast fyrir þessa tvo hópa, staðsett þar sem flestir nemendur eiga leið um og nálægt vinnuaðstöðu kennara Efni safnsins sé þannig fyrir komið að auðvelt verði að finna gögn og fá þau lánuð Nemendur fái góða leiðbeiningu um umgengni og útlánsreglur, þannig að þeir verði sjálfstæðir og leitandi í notkun sinni og líti á safnið sem sjálfsagðan þátt í leik og starfi Safnið búi yfir eða hafi aðgang að sem fjölbreytilegustum áhöldum til að framleiða og birta verk nemenda
Árlega sé gert átak í að kynna nemendum norrænar bókmenntir og höfunda, sem standa framarlega í skrifum fyrir börn og unglinga.
|