29. ágúst 2010
gleði-heilbrigði-árangur
Skólasetning GBF fór fram í dag í yndislegu veðri sem vonandi er tákn um farsælt starf skólans í samvinnu við foreldra og samfélagið allt. Skólastjóri bauð alla viðstadda velkomna til samstarfs í nýjum sameinuðum skóla og gerði grein fyrir stefnu, framtíðarsýn og gildum sem ákveðin hafa verið fyrir skólann. Mjög góð mæting var á setninguna og að henni lokinni var námsefniskynning þar sem starf vetrar var kynnt og voru þær í höndum umsjónarkennara bekkjadeilda.
Framtíðarsýn Grunnskóla Borgarfjarðar er að útskrifa metnaðarfulla nemendur, sem nýta styrkleika sína til að ná árangri. Skólinn er sérstaklega sterkur á sviði lýðheilsu, lífsleikni, list og verkgreina með tengingu við náttúru, arfleið, menningu og sögu heimasvæðisins. Skólinn eykur fjölbreyttni sína í gegnum ólíkar starfsstöðvar sem standa saman og vinna saman að stöðugt betri árangri.
26. ágúst 2010
Á morgun föstudaginn 27. ágúst verður skólasetning í Grunnskóla Borgarfjarðar.
Skólasetning á Hvanneyri verður
kl. 10:00 í skólahúsnæðinu.
Á Varmalandi verður skólasetningin
kl. 12:30 í Þinghamri.
Á Kleppjárnsreykjum verður skólasetningin
kl. 14:30 í matsal skólans.
Að skólasetningu lokinni verða námsefniskynningar sem eru í höndum umsjónakennara.
20. ágúst 2010
10. ágúst 2010
Það styttist í skólabyrjun. Í GBF er undirbúningsvinna hafin og gengur vel. þann 16., 17., og 18. ágúst munu starfsmenn skólans ásamt fulltrúum foreldra og starfsfólki úr stoðþjónustu hans taka þátt í stefnumótunarvinnu, eftir það hefst undirbúningur kennara og starfsfólks fyrir komandi skólaár.
Nokkuð hefur verið um að foreldrar spyrji um innkaupalista og munum við setja þá á vef skólans í lok næstu viku.
Skólasetning verður föstudaginn 27.ágúst og kennsla hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 30.ág. Skólasetning GBF að Hvanneyri verður kl. 10:00 í skólahúsnæðinu, GBF að Varmalandi kl. 12:30 í Þinghamri og í GBF að Kleppjárnsreykjum í matsal skólans kl. 14:30.
Að skólasetningu lokinni verða námsefniskynningar sem eru í höndum umsjónakennara.
Verið er að vinna að nýrri heimasíðu fyrir skólann og slóðin er http://www.gbf.is. Á upphafsíðunni verða upplýsingar sem eiga sameiginlega við um allar deildir og þar verða sérstakir linkar inn á hverja deild fyrir sig. Þar verður hægt að nálgast upplýsingar um starfsemi viðkomandi starfsstöðvar.
Ef einhverjar spurningar vakna þá endilega hafið samband við skólastjóra eða deildarstjóra viðkomandi deilda.
Með vinsemd og von um gott samstarf á nýju skólaári,
Skólastjórnendur
14. júní 2010
9. júní 2010
7. júní 2010