Skákdagur Íslands var haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn í gær og af því tilefni var teflt víða um skólann og nemendur sýndu alveg snilldar takta í taflinu. Töflin eru búin að vera uppivið hjá okkur á Kleppjárnsreykjum alla vikuna og hafa nemendur nýtt þau vægast sagt vel.