Stefna
Grunnskóla Borgarfjarðar
Þátttaka og ánægja hagsmunaaðila
· Nám og kennsla við hæfi, m.a. byggt á rauntengingu og áhugasviðum nemandans
· Jafnrétti í skólastarfi
· Markvissar forvarnir
· Samfélagsleg þátttaka
Skilvirkir og áhrifaríkir ferlar/verklag vegna kennslu og stoðstarfsemi
· Nám og kennsla við hæfi hvers og eins
· Fjölbreytt og skýrt námsmat
· Öflugt samstarf innan og milli skólastiga
· Markviss og vel skipulögð stoðþjónusta innan skólans
· Gott upplýsingaflæði, innan, til og frá skóla
· Öflugt samstarf og sameiginleg ábyrgð heimila og skóla
· Traust tengsl við grenndarsamfélagið
· Skýr verkaskipting, áætlanagerð og verkferlar
· Reglubundið eftirlit, gæðastjórnun og mat á skólastarfinu, með viðeigandi stuðningi
· Regluleg þarfagreining eigna og búnaðar
Lærdómur og vöxtur
· Stjórnun er fagleg, sterk og skipulögð
· Starfslýsingar eru skýrar og þekktar
· Starfsfólk hefur bakgrunn til að sinna starfi sínu
· Fagþekkingu starfsfólks er viðhaldið og hún stöðugt aukin
· Þekking og reynsla starfsfólks er nýtt til hins ýtrasta, öllum starfsstöðvum í hag
Fjárhagsleg frammistaða
· Sjálfstæði er í fjármálum
· Grunnfjárframlög eru tryggð
· Stöðugt er leitað leiða til að auka fjármagn til skólans
· Velvilji og þekking samfélagsins er nýtt skólanum til hagsbóta
· Forsendur í fjárhagsáætlun eru skýrar og fjárhagsáætlanir raunhæfar
· Fjármagn er nýtt með skilvirkum hætti
· Eignum og búnaði skólans er viðhaldið til að tryggja hámarksnýtingu
· Starfsfólk og nemendur búa yfir kostnaðarvitund og nauðsynlegri þekkingu á fjárhagsstöðunni