Við í 2.bekk fórum út í gær í útinámstímanum okkar. Það var nú ekki hægt að sleppa snjónum og öllu því sem hann hefur upp á að bjóða. Við gengum um, fundum brekku til að renna í og settumst síðan í snjóinn, lokuðum augunum og nutum þess að hlusta á það sem var að gerast í náttúrunni í kringum okkur. Þegar við vorum búin að því horfðum við vel í kringum okkur og nutum náttúrufegurðarinnar, sem allir voru sammála um. Ekki má svo gleyma snjóenglunum sem voru þarna úti með okkur. Áður en að tímanum lauk fórum við inn og sömdum ljóð um það sem við vorum að gera, skrifuðum það niður og myndskreyttum ;)
Snjóengill
Að vera úti er gaman,
við fórum í snjókast,
saman.
Snjór, fjöll, tré
er náttúran.
Höf. 2.bekkur Varmalandi.
Allir voru brosandi og sælir eftir útiveruna og ánægðir með ljóðið sem flestir sungu á leið sinni í jógatímann hjá henni Betu.