Viðbragðsáætlun almannavarna

Viðbragðsáætlun almannavarna á pdf formi

Viðbragðsáætlun þessi segir fyrir um skipulag og stjórn aðgerða í Grunnskóla Borgarfjarðar í samræmi við áætlun Almannavarna um viðbrögð við heimsútbreiðslu inflúensu.

Markmið viðbragðsáætlana skóla eru að tryggja skipulögð og samræmd viðbrögð allra skólastofnana sem og starfsmanna þeirra þegar til inflúensufaraldurs kemur.

Við gerð áætlunarinnar er meðal annars stuðst við lög um almannavarnir nr. 82/2008 og lög um sóttvarnir nr. 19/1997.

Áætlunin er í samræmi við Landsáætlun vegna heimsfaraldurs inflúensu.

Viðbragðsáætlanir skóla hafa samræmda uppbyggingu. Kaflar 2, 3, 4 og 7 eru sameiginlegir og geyma almennar upplýsingar frá menntamálaráðuneyti, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti sóttvarnalæknis. Aðra kafla semja skólarnir sjálfir og mynda þeir hina eiginlegu viðbragðsáætlun hvers skóla.

Ábyrgð á áætlun þessari er í höndum Ingibjargar Ingu Guðmundsdóttur, skólastjóra. Áætlunin verður endurskoðuð á a.m.k. fimm ára fresti, en yfirfarin árlega t.d. hvað varðar boðleiðir, gátlista og starfssvæði skóla. Ef miklar breytingar verða á starfsemi skólans verður áætlunin þegar í stað endurskoðuð.

Áætlunin verður kynnt fyrir starfsmönnum skólans, nemendum og forráðamönnum nemenda. Hún er aðgengileg á heimasíðu skólans, www.gbf.is. Auk þess eru ljósrit af áætluninni á skrifstofu skólans, skrifstofum stjórnenda, í mötuneyti á Kleppjárnsreykjum og á kaffistofu /mötuneyti starfsmanna á báðum starfsstöðvum.

Áætlun þessi tekur þegar gildi.

Kleppjárnsreykjum 31. ágúst 2009

(uppfært 17. október 2014)