Auður Jónsdóttir skrifaði þessa sögu sem er einkum ætluð nemendum á aldrinum 10–13 ára. Hún er auðlesin og sérstaklega ætluð börnum sem eiga erfitt með að lesa langan, samfelldan texta.
Það getur verið erfitt að flytja til nýs lands. En lífið er oftast fullt af ævintýrum og allt getur gerst eins og í þessari sögu um Möggu sem flutti til Danmerkur.
Bókin er sett upp með lestrarfræðileg sjónarmið í huga. Hún eru skrifuð á léttu og ljósu máli, letur er skýrt og línur stuttar. Myndskreytingar eru ríkulegar. Tvær hljóðbækur til lestrarþjálfunar þar sem textinn er lesinn skýrt og ætlast til að nemandinn fylgist með í bókinni um leið og hann hlustar eru líka til á safninu.
Bókin er skemmtilega myndskreytt af Þórarni Leifssyni.