Stóra upplestrarkeppnin á Vesturlandi fór fram í Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit. Grunnskóli Borgarfjarðar átti sigurvegarann að þessu sinni og Auðarskóli í Búðardal hlaut annað og þriðja sæti. Ingibjörg Þórðardóttir fór með sigur af hólmi. Allir keppendur stóðu sig með prýði og öll umgjörð mótsins var til mikillar fyrirmyndar. Einar Margeir stóð sig einnig mjög vel fyrir GBF. Frábær frammistaða okkar manna.
Fræðsluerindi
Takið frá mánudagskvöldið þann 16.apríl! Þá kemur Vanda Sigurgeirsdóttir lektor við Háskóla Íslands og þjálfari hjá KVAN og heldur fræðsluerindi í Grunnskóla Borgarfjarðar. Hún leggur áherslu á hvernig foreldrar geta hjálpað börnum sínum að efla félagsfærni, vináttu, samskipti og leiðtogahæfileika. Þetta eru allt þættir sem hafa mikil áhrif á lífsgæði, heilsu og velferð barna. Fyrirlesturinn fer fram á Kleppjárnsreykjum þann …
Á döfinni í apríl í GBF
Á morgun 11. apríl verður skíðaferð Hvanneyrardeildar ef veður og aðstæður leyfa. 13. apríl er skíðaferð Kleppjárnsreykjadeildar og 23. er skíðaferð Varmalandsdeildar (1. – 7. bekkur) Þessar dagsetningar geta breyst með stuttum fyrirvara vegna veðurs. 12. apríl verður árshátíð unglinga á Varmalandi. Vikuna 16. – 20. fer 9. bekkur Kljr og Vlsk í Nordplus ferð til Danmerkur
Leynivinaleikur
Á yngsta stigi á Kleppjárnsreykjum var leynivinaleikur í þrjá daga fyrir páskafrí. Þá áttu nemendur að draga sér leynivin og fá síðan foreldra sína til þess að aðstoða sig við að skrifa fallega orðsendingu til vinarins. Hér má sjá hvernig hjartað stækkaði dag frá degi og var virkilega gaman að sjá hversu fjölbreyttar og fallegar orðsendingarnar voru.
Hænuungar
Þessir fjölbreyttu hænuungar litu dagsins ljós hjá 1.bekk í myndmennt, á Varmalandi. Þeir flögruðu svo heim í páskafrí með eigendum sínum. Og hver veit nema einhver egg eigi eftir að koma við sögu í framhaldinu 😁🐥
Tilkynning frá foreldrafélaginu
Svo virðist sem einhverjir foreldrar hafi fengið sendan fleiri en einn greiðsluseðil frá Foreldrafélaginu í heimabankann hjá sér. Það voru mistök sem við biðjumst velvirðingar á enda var aðeins ætlunin að hvert heimili fengi einn greiðsluseðil. Við erum að vinna í umbótum í samvinnu við bankann. Bestu kveðjur, stjórnin.
Frá foreldrafélaginu
Heilir og sælir kæru foreldrar og forráðamenn! Það ber svo við um þessar mundir að valgreiðslukrafa Foreldrafélags Gbf fer í loftið. Þá er ekki úr vegi að við í stjórninni látum heyra frá okkur til að segja ykkur hvað er á döfinni. Eins og þið vitið var í fyrsta skipti í fyrra sem árgjald af þessu tagi var sent út. …
Efnafræðitilraun
Skemmtilegur tími í efnafræði á unglingastigi í GBF-V deild
Árshátíð Hvanneyrardeildar
Lokaæfinga sprettur fyrir árshátíð Hvanneyrardeildar á fimmtudaginn kl.16:30.