Ferðir eiga að taka 4 tíma, ef ganga tekur styttri tíma þá þarf að skipuleggja leiki eða annað. Allir nemendur fara fram og til baka með sömu rútunni – líklegt að einhverjir þurfi að bíða smástund.
1. Þjófaklettar – hálf -Vitinn
Farið frá planinu við Brúarendann. Létt ganga út að vitanum. Gengið eftir veginum í skóginum og síðan fjöruna til baka (eða öfugt – eftir því hvernig stendur á flóði). Nemendur hafa með sér nesti. Klædd eftir veðri – athuga skófatnað. Hafa með sér aukasokka og lítið handklæði. Vera útbúin/n til 4 tíma útivistar.
2. Hafnarfjall
Rútuferð að plani við gamla veginn meðfram fjallinu. Nokkuð erfið ganga, bratt. Farið upp á topp og skrifað í gestabók. (Farið með gestabók). Nemendur hafa með sér nesti. Klædd eftir veðri – athuga að vera í skóm til fjallgöngu. Vera útbúin/n til 4 tíma útivistar.
3. Skálafell -,,Upp á milli brjósta“ –- Árdalsgil
Farið frá Dæluskúr ,,upp á milli brjósta og niður Árdalsgil að Árdal. Frekar létt ganga en þarf að vera í góðum skóm. Nemendur hafa með sér nesti. Klædd eftir veðri – athuga að vera í skóm til fjallgöngu. Vera útbúin/n til 4 tíma útivistar.
4. Golfvöllur
Farið frá skólanum á rútu og upp á golfvöll. Læra á kylfu og kúlu. Ferðin tekur 4 tíma. Nemendur hafa með sér nesti. Klædd eftir veðri og útbúin/n til 4 tíma útivistar.
5. Einkunnir
Rútuferð að Álatjörn. Gengið frá Álatjörn að Háfsvatni og til baka (um 2 og hálf klukkustund). Gangan er fremur létt en gengið er á blautu svæði (mýri) því er nauðsynlegt að vera í góðum skóm/stígvélum. Veiði og busl í Álatjörn að lokinni göngu. Nemendur hafa með veiðistöng og handklæði og nesti (kveikt verður upp í grilli þannig að hægt er að koma með pylsu á grillið). Klædd eftir veðri og útbúin/n til 4 tíma útivistar.