Skólar á grænni grein er alþjóðlegt verkefni til að auka umhverfismennt og styrkja umhverfisstefnu í skólum. Þeir
skólar sem vilja komast á græna grein í umhverfismálum leitast við að stíga skrefin sjö. Þegar því marki er náð fá skólarnir leyfi til að flagga Grænfánanum næstu tvö ár en sú viðurkenning fæst endurnýjuð ef skólarnir halda áfram góðu starfi. Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Skrefin sjö eru ákveðin verkefni sem efla vitund nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólans umhverfismál. Verkefnin eru bæði til kennslu í bekk og til að bæta daglegan rekstur skóla. Þau auka þekkingu nemenda og skólafólks og styrkja grunn að því að tekin sé ábyrg afstaða og innleiddar raunhæfar aðgerðir í umhverfismálum skóla. Jafnframt sýnir reynslan í Evrópu að skólar sem taka þátt í verkefninu geta sparað talsvert í rekstri.
Markmið verkefnisins er að:
• Bæta umhverfi skólans, minnka úrgang og notkun á vatni og orku.
• Efla samfélagskennd innan skólans.
• Auka umhverfisvitund með menntun og verkefnum innan kennslustofu og utan.
• Styrkja lýðræðisleg vinnubrögð við stjórnun skólans þegar teknar eru ákvarðanir sem varða nemendur.
• Veita nemendum menntun og færni til að takast á við umhverfismál.
• Efla alþjóðlega samkennd og tungumálakunnáttu.
• Tengja skólann við samfélag sitt, fyrirtæki og almenning.
Grænfánaverkefninu á Íslandi er stýrt af Landvernd sem er aðili að alþjóðlegu samtökunum FEE. Stýrihópur um Grænfána er Landvernd til fulltingis um allt sem viðkemur verkefninu.
Upphafið
Sumarið 2000 gerðist Landvernd aðili að samtökunum Foundation for Environmental Education in Europe (FEEE). Síðan hafa samtökin gerst alþjóðleg og stytt nafn sitt í samræmi við það og nota skammstöfunina FEE. Samtökin sjá um fimm mismunandi umhverfisverkefni og er Grænfáninn eitt af þeim.
Haustið 2000 skrifaði Landvernd nokkrum stofnunum og aðilum og boðaði til vinnufundar í þeim tilgangi að ræða og meta hvort Grænfáninn félli að þörfum íslenskra skóla og ef svo væri að setja þá fram tillögur um framhald vinnunnar. Hópurinn hélt tvo fundi í október og nóvember og niðurstaða hans var að sett yrði á laggirnar tilraunaverkefni um Grænfánann til tveggja ára. Það hæfist með því að senda öllum grunnskólum á landinu lýsingu á verkefninu og óska eftir umsóknum þeirra sem vildu taka þátt frá byrjun. Gert var ráð fyrir að fara af stað með um fimm skóla. Hópurinn gekk einnig frá framkvæmda- og fjárhagsáætlun til tveggja ára.
Á útmánuðum 2001 var öllum grunnskólum á landinu sent kynningarbréf um Grænfánann og óskað eftir að áhugasamir sæktu um þátttöku og í maí stofnaði Landvernd sérstakan stýrihóp um verkefnið og réð verkefnisstjóra. Tólf skólar sóttu formlega um að taka þátt frá byrjun í verkefninu á Íslandi og var Grunnskólinn í Borgarnesi einn af þeim. Niðurstaða stýrihóps var að svara þeim öllum jákvætt. Strax vorið 2002 voru þrír fyrstu Grænfánarnir dregnir að húni á Íslandi.