Gauragangur

Í bókinni er tilverunni lýst frá sjónarhóli Orms sem er í 9. bekk. Ormur er dæmigerður unglingur í uppreisnarhug. Tilfinningarnar ólga innra með honum en hann brynjar sig með alvöruleysi og töffarastælum. Ormur er greindur og hugsandi strákur en á í sífelldri baráttu í skólanum og veru hans þar lýkur þegar upp kemst um stuld hans á samræmdu prófunum. Fleira kemur upp sem raskar hugarrónni en Ormur leggur ekki árar í bát heldur ræður sig til sjós á meðan hann er að átta sig á hlutunum.
Samnefnd kvikmynd sem byggir á sögunni var frumsýnd í desember árið 2010.