Korku saga

Hér eru sameinaðar í einni bók verðlaunabækurnar Við Urðarbrunn og Nornadómur. Í þessari spennandi skáldsögu frá upphafsárum Íslandsbyggðar er sögð saga ambáttarinnar fjölkunnugu, Korku. Faðirinn er norskur landnemi, móðirin írsk ambátt og því er Korka borin í ánauð. Fyrir áræði sitt fær hún frelsi, en hyldýpið milli þrælborinna og þeirra sem fæddir eru frjálsir markar líf hennar um alla framtíð.