Mávahlátur

Allt fer á annan endann í friðsælli veröld þorpsins þegar Freyja birtist einn góðan veðurdag, komin alla leið frá Ameríku. Og ekki er að undra þegar önnur eins kona er á ferðinni. Hárið er þykkt og svart og nær niður á mjaðmir, augun ísblá og stingandi, varirnar rjóðar og vöxturinn fullkominn. Hún borðar ekki kjöt, á sjö koffort af flíkum og er kaldari viðmóts en liðið lík. Brátt verður hús afa og ömmu vettvangur flókinna ástamála og kynlegrar atburðarásar þegar hið rótgróna kvennasamfélag fer allt úr skorðum.

Sögur Kristínar Marju Baldursdóttur njóta mikilla vinsælda enda einkennast þær af einstæðri hugkvæmni og frásagnagleði. Mávahlátur er í senn þorpssaga, kvennasaga, glæpasaga og ástarróman. Sögusviðið er dregið upp af miklu öryggi og persónurnar eru bæði ljóslifandi og eftirminnilegar.