Mýrin

Roskinn maður finnst myrtur í kjallaraíbúð í Norðurmýri. Í skrifborði hans er falin gömul ljósmynd af fjögurra ára stúlku. Myndin leiðir lögregluna inn í liðna tíð sem geymir skelfilegan glæp og fjölskylduharmleik. Á sama tíma hverfur ung kona úr brúðkaupi og mannshvarf er tekið upp að nýju.

Rannsóknarlögreglumennirnir Erlendur og Sigurður Óli standa frammi fyrir flóknu og erfiðu verkefni sem teygir anga sína inn í myrka fortíð og ólík svið samtímans.

Snilldarvel skrifuð og snjöll íslensk spennusaga með margslungnum söguþræði em engan svíkur. Mýrin var fyrsta metsölubók Arnaldar Indriðasonar og fyrir hana hlaut hann Glerlykilinn, norrænu glæpasagnaverðlaunin. Hún hefur verið þýdd á tugi tungumála.