Strákurinn í röndóttu náttfötunum

Sagan gerist í síðari heimsstyrjöldinni. Bruno er níu ára drengur. Hann veit ekkert um helförina eða grimmdarverk Þjóðverja erlendis. Dag einn flytur hann ásamt fjölskyldu sinni úr notalegu húsi þeirra í Berlín og upp í sveit þar sem hann hefur engan til að leika sér við.

Í sveitinni kynnist hann strák; Shmuel, sem lifir undarlegu lífi handan girðingar og klæðist þar að auki röndóttum náttfötum – eins og reyndar allir sem eru sömu megin gaddavírsins og hann. Með Bruno og Shmuel tekst vinátta sem á eftir að draga á eftir sér dilk og hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar.

Áslaug Agnarsdóttir þýddi bókina. Þýðingin var styrkt af Evrópusambandinu